Hnetusmjör og salmonella

Á mbl.is í dag er greint frá innköllun á hnetusmjöri vegna salmonelluhættu. Það er gott að blaðið greini frá slíkum fréttum, en í svona tilvikum mætti nú leggja aðeins meiri vinnu í fréttina. Nokkrum spurningum er ósvarað, til dæmis þessum:

  1. Hvar finnur neytandinn framleiðslunúmer vörunnar? (Hér hefði verið gott að birta mynd af hnetusmjörinu sem sýndi framleiðslunúmerið)
  2. Hvert á neytandinn að sækja bætur vegna hinnar innkölluðu vöru? 

Ég fór því á stúfana og fletti upp vefsíðu heildsölunnar. Þar er ekkert fjallað um innköllun á hnetusmjöri, en þeim mun meiri fróðleikur um heildsöluna sjálfa (til dæmis að hún er ein af þeim stærstu hér á landi). Þar er líka boðið upp á innsendingu á fyrirspurnum. Ég sendi eina svohljóðandi:

Góðan  dag.

Í frétt á mbl.is er greint frá innköllun á hnetusmjöri af gerðinni Peter Pan vegna hættu á salmonellusýkingu. Í framhaldi af þessari frétt vil ég bera fram tvær spurningar:

a. Hvar á umbúðum hnetusmjörsins er hægt að finna framleiðslunúmer?

b. Í fréttinni eru neytendur hvattir til að farga vörunni, með hvaða hætti hyggst fyrirtækið þá bæta neytendum tjónið?

Virðingarfyllst,
Árni Svanur Daníelsson

Svarið verður birt hér á annálnum þegar það berst. 

Uppfært kl. 19:22

Komið var inn á þetta mál í kvöldfréttum sjónvarps. Þar var sagt að hnetusmjör merkt framleiðslunúmeri sem hefst á 2111 væri innkallað. Í frétt Mbl er talað um framleiðslunúmerið 2211. Hverjum á maður nú að trúa? 

Uppfært kl. 19:29

MSNBC er sammála sjónvarpinu. Því er best að hafa vara á sér gagnvart krukkum sem eru merktar 2111 en ekki 2211. 

Uppfært kl. 19:39

Það mega umsjónarmenn mbl.is eiga að þeir eru snöggir að bregðast við ábendingum. Nú er búið að lagfæra framleiðslunúmerið í fréttinni.


mbl.is Peter Pan hnetusmjör innkallað vegna salmonelluhættu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

var eining að kanna þetta, Fór á heimasíðu Conagra foods,

nr er að finna á lokinu, akurat undir íslensku upplýsingamiðann sem limdur er á krukkunni. Þannig að maður þarf fyrst að skafa af limiðan til að finna nr,

viti menn dósin sem var upp í skáp hja mer byrjaði á 2111

robert (IP-tala skráð) 15.2.2007 kl. 20:20

2 identicon

Sæll, Árni.

Þín fyrirspurn barst okkur nú aldrei þannig að ég birti svar okkar hér á síðunni þinni.   Fréttatilkynning var send út á alla fjölmiðla í gær um leið og málið kom upp, hún var svohljóðandi :

Heildverslunin Innnes ehf. hefur ákveðið að innkalla allt Peter Pan hnetusmjör af markaðinum með framleiðslunúmeri sem hefst á tölunum 2111. Framleiðslunúmerið er staðsett á loki vörunnar.  Ástæða þessarar innköllunar er sú að Bandaríska Matvæla- og Lyfjaeftirlitið hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að fundist hafi fylgni milli salmónellusýkingar og neyslu á hnetusmjöri með þessu framleiðslunúmeri.  Þrátt fyrir að ekki hafi fundist salmónella í hnetusmjörinu, þá eru þeir neytendur sem eiga krukkur af Peter Pan hnetusmjöri með framleiðslunúmeri sem hefst á 2111 og keypt hefur verið í maí 2006 eða síðar, beðnir um að annaðhvort farga vörunni hið fyrsta eða skila henni í viðkomandi verslun.
 
Innnes hefur nú þegar stöðvað sölu á Peter Pan hnetusmjöri með þessu framleiðslunúmeri og sent tilkynningu um innköllun til verslana og annarra viðskiptavina.  Það skal þó áréttað að ekki er vitað um neina sýkingu hérlendis af þessum völdum.
Við stýrum því ekki hvernig fjölmiðlar kjósa svo að birta sínar fréttir en svona leit tilkynning okkar út.  Við höfum unnið málið í samvinnu við Umhverfisstofu og hafa þeir ekki gert neina athugasemd við hvernig staðið hefur verið að málinu.
Kv.
Sigurður Björgvinsson,
markaðsstjóri Innnes ehf.

Sigurður Björgvinsson (IP-tala skráð) 16.2.2007 kl. 10:23

3 Smámynd: Árni Svanur Daníelsson

Þakka þér fyrir svarið Sigurður. Tilkynningin sem þið senduð út er mun ítarlegri en fréttin sem birtist á mbl.is í gær (mér skilst að það hafi verið vönduð og ítarleg umfjöllun í Morgunblaðinu í dag, en ég hef ekki séð hana sjálfur). 

Árni Svanur Daníelsson, 16.2.2007 kl. 12:40

4 Smámynd: Sigríður Gunnarsdóttir

Það kom að því að ég varð heppin, ég borða ekki hnetusmjör og á það því ekki til:-)

En hlakka til að fá þig í fjörðinn fagra á föstunni.

Sigríður Gunnarsdóttir, 19.2.2007 kl. 21:12

5 Smámynd: Árni Svanur Daníelsson

Það verður auðvitað mjög skemmtilegt :)

Árni Svanur Daníelsson, 21.2.2007 kl. 10:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband