Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar verða veitt í fyrsta sinn á laugardaginn kemur. Um verðlaunin keppa myndirnar fjórtán sem eru sýndar í flokknum Vitranir á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Reykjavík. Sömu myndir keppa líka um aðalverðlaun hátíðarinnar og hin s.k. Fipresci-verðlaun. Það verður spennandi að fylgjast með þessu og gaman að sjá hvort dómnefndirnar þrjár eru sammála. Slíkt er engan veginn sjálfgefið, enda unnið með ólíka mælikvarða.
Í dómnefndinni eru Gunnlaugur A. Jónsson, prófessor í guðfræði, Oddný Sen, kvikmyndafræðingur, Gunnar J. Gunnarsson, lektor, og svo undirritaður.
Kvikmyndaverðlaun kirkjunnar veitt í fyrsta sinn | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Kvikmyndir | Breytt s.d. kl. 22:48 | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.